EINHERJI
24.11.2006 21:48:17 / EINHERJAFAN #1

Uppfærsla á Innanhúsmótinu...

Smá breytingar hafa verið gerðar á hópnum.....

Hópurinn: Halli, Garðar, Villi, Eiki, Birkir, Helgi Þór og Rúnar....

Nú hugsa margir ???  Rúnar ???? Það er markmaður sem kemur úr Ými hann mun standa á milli stangana hjá okkur eystanmönnum.

Og Sigurjón !!!! Þú ert ráðinn "ef" þú mætir þá núna...!!!!!!

Og því miður stelpur þá var sú ákvörðun tekin að ÞRÖNGU búningarnir eru ennþá á Vopnafiði og nýju búningarnir teknir með.

KOma svo strákar..


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:42:26 / EINHERJAFAN #1

Íslandsmótið Innanhús

Einherji hefur skráð sig til keppni í Innanhúsknattspyrnu . Mennirnir sem fara eru: Halli, Biddi, Garðar, Villi, Ívar, Gísli og Eiki. Ekki amalegur hópur þarna á ferð. Eina sem vantar er góður liðsstjóri og vatnsberi. Auglýsum hér með eftir liðstjóra og vatnsbera. Vinnutími er frá 14:30 til 18:00 á sunnudaginn kemur (26nóv) Laun eru eftir samkomulagi. kveðja strákarnir

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:16:00 / EINHERJAFAN #9

Er þetta búið spil?

Góðan daginn

Hvað segja Einherjamenn? Kannski svolítið snemmt en mig langar að forvitnast hvort að menn hafi áhuga á því að gera e-ð í þessum málum og koma Einherja í baráttu um að komast í 2.deild? Ég sé ekkert því til fyrirstöðu ef menn eru tilbúnir að leggja eitthvað á sig.

Hvað segið þið?

-Konni

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 22:06:34 / EINHERJAFAN #1

Goðan dag

Góðann Daginn...

Nú eru Vopnafjarðardagar búnir og var hið árlega Sandboltamót haldið þar sem 5 lið skráðu sig leiks.

Grettir Streki = Biddi, Halli, Steini B, Mannsi, Andri Ó og Sigurjón  

Vængir Júpiters = Ívar, Simmi, Eiki, Helgi Már jr. , Daði P og Sölvmundur 

The Ladies = Einherja stelpur þekki þær ekki   

 Bara allli í djóki = Bjössi, Guðni, Bessi, Arnar, Bjarki og Kristófer   

Nubbarnir = Nokkrir snarbrjálaðir strákar sem náðu ekki einu sinni 1,50

En Vængefnir Júpiter unnu Gretti Sterka 1-0 í hreinum úrslitaleik, þar sem Simmmi skoraði ljótasta mark í heimi og Helgi Már jr. varði á línu þegar 1mín var eftir, taktík Vængefna var að tefja sem mest því þeir nelgdu alltaf langt yfir markið úr "ÚTSPARKI" !!!!  


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 17:41:20 / EINHERJAFAN #1

Hvað er í gangi ????

Jæja núna er botninum náð, Einherji eru búnir að segja sig úr Malarvinnslubikarnum vegna þess að mannskapur fæst ekki til að spila leiki !!!!!                                          

Hvað er málið með ykkur strákar ???

Endilega komiði með góða skýringu afhverju þið viljið ekki spila leiki???

Skil afhverju stjórnin vilji ekkert gera ef áhuginn er svona mikill...


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 16:56:44 / EINHERJAFAN #9

Höttur B - Einherji

Leikurinn verður á morgun, miðvikudag kl. 20:30 á Eiðavelli. Allir að mæta og sjá topp fótbolta;)

Áfram Einherji!

-Konni

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 19:26:50 / EINHERJAFAN #9

Frestun

Tóm leiðindi - leiknum frestað þar sem það vantar of marga hjá okkur. T.d. myndi Moli ekki geta komið á morgun og svo erum við markmannslausir, Ómar á Akureyri. Matti og Símon fyrir sunnan, Danni meiddur og svoleiðis vesen
Vill í leiðinni hvetja menn sem hafa ekki mætt, til að mæta bara svo það þurfi ekki að koma fyrir aftur að við látum fresta þessu! Bara gaman að mæta á góða æfingu eftir vinnu. Það er líka ekkert til að skammast sín fyrir, t.d. eru fæstir okkar í góðu formi. KOMA SVO!

Áfram Einherji!

-Konni

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 22:56:36 / EINHERJAFAN #9

Leikur á Sunnudag!

Það er rétt, fyrsti leikurinn þetta sumarið verður á Eiðavelli nk. Sunnudag kl. 20. Hvet alla sem geta að mæta! Reyndar er það svolítið tæpt að fá mannskap, en það reddast einhvernveginn. Annars er leikjaplanið komið inn hérna til hægri og þess má geta að þetta verða a.m.k. 8 leikir. En það er meira að finna um þessa fornfrægu kepnni hér: uia.is

Áfram Einherji!

-Konni


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 19:50:46 / EINHERJAFAN #9

Þetta er ekki alveg dautt

Góða kvöldið

Það sem er helst að frétta af Einherja er að það mun vera lið í Malarvinnslubikarnum í sumar og verður fyrsti leikur þann 18.júní. Ég mun setja leikjaplanið hér inn þegar það verður komið. Liðið verður mjög ungt eins og í fyrra en það er nú allt í lagi.
Svo eru nokkrir strákar í 3.flokk að spila í sameiginlegu liði Hattar og Einherja. Þetta eru Danni, Gísli, Ommi og Bjarki. Leiðréttið mig ef það vantar. Þeir hafa staðið sig vel það sem af er og unnu t.a.m. KS 3-2 í gær.
Í sumar gæti farið svo að frímerkið verði hvílt, a.m.k. í bili! Uppi eru plön um að gera malarvöllinn góðan með því að leggja þar gott gras og rífa svo frímerkið upp og gera það upp á nýtt. Vonandi verður þetta gert í sumar, því að þetta blessaða tún er ekki alltaf að gera sig.
Það er ekki fleira að sinni.

Áfram Einherji!

-Konni

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 14:09:34 / EINHERJAFAN #1

Rosafréttir

Já það er rétt !!!!!

Hér með er staðfest að Birkir "trailer" Helgason hefur verið keyptur af 3.deildarliðinu Vinir Nunna.

Kaupverð var bilandi áhugi á fótbolta. Birkir Helgason fær kassa af bjór og 4snúða á mánuði auk þess að hann er með frjálsar mætingar á æfingar.

Hjá Nunna eru 3 fyrrverandi leikmenn hjá Einherja. Garðar "fermingastrákur" Hafsteinsson, Helgi "Strippari" Jónasson og Birgir "Rakari" Þrastarson.

Með þessum kaupum verður Birkir launahæsti leikmaður Nunna fyrir var Helgi Þór með 2kippur og 4 Hitt súkkulaði.


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 18:14:11 / EINHERJAFAN #1

Það týndist úr Einherja

Það er nú heldur betur að týnast úr Einherja.

Linda Björk og Helga Kristjana eru farnar í Hött

Gerður farinn í Grindavík

Sandra Ásgrímsdóttir í Magna

Alexandra, Ingunn og Kristín í Leikni F.

Guðrún Sigríður í Völsung

Björgvin Antonsson í KE

Donni í Huginn

Garðar í Vini

Verður gaman að fylgjast með gangi mála hjá þessu fólki og verðum við með reglulegar upfærslur um hvernig okkar fólki gegnur í sumar.


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 18:29:58 / EINHERJAFAN #1

Sussum svei

Mér finnst að allir ættu að klappa og óska Einherja til hamingju með að vera drullusokkar, draga sig úr keppni þegar vika var í fyrsta leik í bikar og 2 vikur í deild.

Persóulega finnst mér að það hefði mátt senda lið í deildina og leyfa þessum strákum sem eru heima að spila í sumar. Einhversstaðar verður að byrja, og með því að leyfa þeim að keppa í 3.deild fá þeir smjörþefinn af alvöru leik og skilja kannski að það þýðir ekkert að æfa EKKI.

En vonandi læra þeir af reynslunni (hafa gert þetta 2var áður) og byrja strax að skipuleggja næsta ár. Vona að menn með viti þarna á firðinum fara taka málin í sínar hendur.

Held að Vopnafjörður sé deyjandi samfélag sem mætti gangast undir breytingar kominn tími til að skipta þessum köllum út þeir eru búnir að gera alveg nóg fyrir þetta samfélag.

X - N

Nýtt-Afl

Nýtt-Fólk

Nýja-Tíma


» 14 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 21:55:10 / EINHERJAFAN #9

Ekkert Íslandsmót

Var núna áðan að heyra í einum stjórnameðlimi og fékk það staðfest það sem er búið að tala um síðustu daga. Einherji mun ekki taka þátt í 3.deildinni. Vissulega mikil vonbrigði þótt að flestir hafi búist við þessu seinustu daga og vikur. Málið er bara það að þetta var eiginlega allan tímann tæpt vegna leikmanna- og þjálfaraleysis og svo þegar Berto, Donni, Halli og Birkir hættu við var þetta bara orðið vonlaust. Þetta mannskapsleysi er líka skýringin fyrir því að engir æfingaleikir hafi verið.

Nú held ég að menn verði bara að leggja þennan pirring út í stjórnina til hliðar, reyna að taka þátt í ÚÍA keppninni og vinna saman að því að láta Einherja verða með gott og skemmtilegt lið árið 2007. Það er ekki bara hægt að skella skuldinni á stjórnina, þótt mér og fleirum finnist hún vissulega mega gera betur! Til að halda úti liði á svona pínulitlum stað verður að vera samstaða og alvöru áhugi, nr. 1, 2 og 3!

Áfram Einherji!

-Konni


» 26 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 10:41:15 / EINHERJAFAN #1

Með drulluna í brókinni.

Eru Einherjar búnir að skíta í buxurnar enn eina ferðina ???? Maður veit ekki en eitt veit maður þó að ekki verður mikið úr þessu í sumar.

Hvernig nenna menn að "reyna" þetta, safna saman liði í Feb-Mars taka ekkert undirbúningstímabil eða hafa æfingar.

Held að ALLIR sem eru í stjórn Einherja ættu að SKAMMAST sín !!!!!!! Þetta lið verður aldrei neitt annað en b-keppnislið með þessa stjórn, löngu kominn tími til að láta þessa klíku hætta og fá einhverja sem hafa áhuga að ná árangri.


» 18 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 21:55:22 / EINHERJAFAN #9

Einherjaspjall.tk og aðalfundur

Góða kvöldið

Bara að minna á einherjaspjallið sem ég hvet fólk til að nýta sér meira! Mun skemmtilegra en að kommenta bara og enginn staðfestingakóði!

Svo verður aðalfundur Einherja í Kaupvangi á Sunndaginn kl. 13. Hvet alla sem geta, að mæta!

Svosem ekkert meira að segja

Áfram Einherji!

-Konni

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8